13.06.2013 07:42

Umsókn

Umsóknir um kaup á líflömbum

10.06.2013 Fréttir - Dýraheilbrigði

Þann 1. júlí rennur út umsóknarfrestur um flutning á líflömbum samkvæmt reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landssvæða. Um leyfi til flutnings á líflömbum og kiðum er sótt á heimasíðu Matvælastofnunar.

 

Bannað er að flytja sauðfé, geitur og nautgripi yfir sauðfjárveikivarnarlínur. Um flutning á lömbum og kiðum gildir sérstök reglugerð.

 

Þá er einnig bannað að flytja sauðfé og geitur milli hjarða á svæðum þar sem riða er landlæg og hefur greinst undanfarin 20 ár.

 

Þessi sýktu svæði eru eftirtalin varnarhólf: Vatnsneshólf, Húnahólf, Skagahólf, Héraðshólf, Austfjarðahólf, Suðurfjarðahólf, Hreppa- Skeiða- og Flóahólf, Biskupstungnahólf og Skjálfandahólf nema Skútustaðahreppur, Engidalur, Lundarbrekka og bæir þar fyrir sunnan. Auk þess er Dalvíkurbyggð norðan Hámundarstaða sýkt svæði í Tröllaskagahólfi, Jökuldalur og Jökulsárhlíð sunnan Smjörfjallalínu í Norðausturhólfi og Sveitarfélögin Ölfus, Hveragerði og Árborg og Grafningur í Grímsnes og Grafningshreppi í Landnámshólfi.

 

Á þessum svæðum má ekki flytja kindur til lífs milli hjarða né að flytja kindur inn í þau af ósýktum svæðum í sama hólfi.

Ítarefni

Til baka

13.06.2013 07:37

Setur

Forystusetur.is komið í loftið

 

forystuærHinn 13.apríl 2010 var stofnað Fræðafélag um forystufé með aðsetur á Svalbarði í Þistilfirði. Tilgangur félagsins er að vinna að uppbyggingu og rekstri Fræðaseturs um forystufé. Svalbarðshreppur afhenti félaginu gamalt samkomuhús til að hýsa Fræðasetrið. Þar stendur til að opna sýningu um forystufé.

Stjórn félagsins skipa: Daníel Hansen, Svalbarðsskóla, formaður, Fjóla Runólfsdóttir, Gunnarsstöðum, gjaldkeri, Einar Guðmundur Þorláksson, Svalbarði, ritari og meðstjórnendur eru Jakobína Ketilsdóttir, Kollavík og Eggert Stefánsson, Laxárdal.

Félagið hefur nú opnað heimasíðu á slóðinni forystusetur.is.  Á síðunni kemur m.a. fram að ætlunin sé að hafa sem flestar upplýsingar um starfsemi Fræðafélagsins, hvernig gengur með uppbygginguna og ekki síður leyfa öllum að fylgjast með því sem er að gerast þegar við höfum opnað. Til að styðja við bakið á okkur og gera síðuna skemmtilegri og fróðlegri eru allar ábendingar vel þegnar.

13.06.2013 07:13

Í heimsókn

 

 

13.06.2013 07:10

Grasið græna

 

 

10.06.2013 00:30

Bjartsýni á svartsýnina

Túnin sem verst voru farin af kali tætt í dag CA. 5 ha.

hefði verið hægt að tæta helmingi meira en hversu jarðvegsgrunnt er á þeim túnum þá var því sleppt,

svo er bara bíða og vona um uppskeru.

 
 

09.06.2013 00:11

Rifið og tætt

Ekkert annað í stöðunni en að tæta upp mest allt heimatúnið þar sem ekki er jarðvegsgrunnt

80% ónýtt
 

 

09.06.2013 00:02

Æðarkollan


Hér var næstum því farið illa fyrir þessari kollu hún hefur orpið á milli snarrótartoppa

þegar bóndinn var að tæta upp túnið en kollan sat sem fastast og ætlar sér að koma ungunum á legg hérna

gaman að hafa þær svona nálagt bænum og getað fylgst með, það hefur aldrei orpið kolla svona nálagt.


 

 

06.06.2013 19:35

Lamba lamb

Ekki eru allar sáttar við að yfirgefa sitt vermdaða umhverfi og fara í óvissuna.

 

06.06.2013 19:33

Kal

Kal er mjög mikið hér á bæ, hvað gera bændur þá??

06.06.2013 19:27

Tilraunir

Forvitnilegt hvort þetta muni gefa góða raun, sakar ekki að prufa.

 

06.06.2013 19:22

Matjurtir

Mitt fólk búið að setja niður 25 kg. af kartöflum, glæsilegt, skemmtilegra að taka þær upp, það finnst mér allavega

 

30.05.2013 13:31

Vaktmenn

Hjálparhellurnar okkar  þegar mest gekk á í sauðburði, það var passað vel upp á köttinn sem var hafður með í ráðum.

 

30.05.2013 13:19

Kalda vorið

Efri myndin er tekin í apríl og neðri myndin í maí

 

Útlitið ekki gott CA.80 % kal á flestum túnum.

 
 
 

30.05.2013 01:28

mars og maí

Efri myndin í mars og neðri myndin  í maí, vetri gengur illa að yfirgefa okkur.

 
 

08.05.2013 21:31

Maí snjór

 

 

 
 

 

 

 

07.05.2013 13:54

Hvar skal hreiðrið vera

 Í  leit að hreiðurstað

 
 
 

07.05.2013 13:46

Bless vetur

Svona var öll hlíðin eftir síðasta skot, nú er komið nóg       " bless bless vetur"


 

 

 
 

06.05.2013 13:12

Lítill frændi

Lítill frændi kom í heiminn þann 3 maí,   til hamingju Sólveig og Simmi

05.05.2013 22:16

Langar út

Ég spái því að þessi nái því að verða mánaðar gömul er þau fá að fara út í fyrsta skipti