03.11.2015 14:42

Drullu/skítapólitík

VÍSIR/PJÉTUR

Bændur í Rangárþingi ytra telja oddvita sveitarfélagsins, Þorgils Torfa Jónsson, hafa svikið sig í viðskiptum þegar Sláturhúsið á Hellu var selt Kaupfélagi Skagfirðinga. Hafi margir selt Þorgilsi Torfa sína hluti á sama tíma í góðri trú á mun lægra mati en því sem hann seldi svo áfram. Þorgils Torfi harðneitar því að hafa blekkt bændur.

 

Þorgils Torfi Jónsson
Þorgils Torfi Jónsson

 

Þorgils Torfi viðurkennir að hafa keypt af bændum bæði um vorið og einnig á sama tíma og verið var að handsala samning við KS.

„Samningaviðræður hófust um vorið og var svo handsalað í kringum kosningarnar 2014,“ segir Þorgils Torfi, sem var sláturhússtjóri á þessum tíma.

„Hins vegar er ekki rétt að þetta hafi verið svona einfalt, þetta voru nokkrar flækjur og það er trúnaðarmál hvernig salan fór fram á milli mín og KS,“ segir Þorgils.

Fréttablaðið ræddi við fjölda bænda í gær sem vildu ekki koma fram undir nafni en sögðust afar óhressir með viðskipti sín við oddvitann. Hefðu þeir selt sína hluti á vel undir tveimur krónum á hvern hlut á sama tíma og KS er í viðræðum við Þorgils Torfa.

Kaupfélag Skagfirðinga kaupir sláturhúsið og Kjötbankann á samtals 282 milljónir króna. Samkvæmt því er verðið um sex krónur á hvern hlut. Þorgils Torfi keypti hins vegar bændur út á sama tíma á verði innan við tvær krónur á hvern hlut. Við þetta eru bændur ósáttir því Þorgils Torfi hafi verið innsti koppur í búri í samningaviðræðum við KS og vissi mun betur en aðrir hvað hægt væri að fá á hvern hlut.

Sláturhúsið var í upphafi ársins 2014 í eigu 176 aðila, ýmist einstaklinga, fyrirtækja eða búnaðarfélaga í sveitinni. Í árslok 2015 hafði hluthöfum fækkað um 29 eða niður í 147 hluthafa. Í ársbyrjun 2014 átti Þorgils Torfi um 36 prósenta hlut í sláturhúsinu en við söluna í júní er selt 60 prósent hlutafé.

 

________________________________________________________________________________________________

 

 

 

 

 Andskotans drullufílan  (verri en úr skítakjallarnum hjá mér)

af þessari endalausri spillingu

og á þar pólitíkin stóran þátt í  því ,

svo því miður viðgengst þetta mjög víða

og menn alveg sjónlausir og heyrnalausir

af ofsatrú á spillingarpólitík og

stjórnmálaflokka og allir í kappi

við að ÞYKJAST  fylgja þeim eftir

og sjá ekki fram fyrir tærnar á sjálfum sér.

 

---------------------------------------------------------------------------------------------

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

03.11.2015 00:17

Sjaldséð sjón á þessum stað

 

 

 

 

 
 
 

03.11.2015 00:09

Indurnar sóttar

 

 

 

 

 

 

 

 

31.10.2015 16:13

Me me _ gibba gibb

 

Pallurinn fullur af kindum og menn og hundur ánægðir feng dagsins :)

30.10.2015 22:40

Hann á afmæli í dag..................

 Víkingur Týr er  þriggja ára í dag, til hamingju með daginn

30.10.2015 22:19

Brennd-ann

 

 

Brennd-ann fær nýtt hlutverk

30.10.2015 22:15

Melarbændur

Melarbændur fengu sér  efnilegann hvolp

30.10.2015 17:42

Djölfulsins sóðaskapur

 

 

 

 

 

FAGRA ÍSLAND

Hver er svo tilgangurinn með þessu? 

fuglar og refir sækja í þetta og dreyfa út um allar heiðar,

ekki gott fyrir  íslendinga sem auglýsa landið okkar svo hreint og fallegt,  hvað halda útlendingar ?

í mínum huga er þetta eingöngu verið að laða fuglinn og refinn að og gefa þeim að borða,

í minni fyrri sveit var alltaf talað um að ganga frá úrgangi af dýrum þannig

að önnur dýr kæmust ekki í hráann,

en það gildir víst  ekki í þessu sveitafélagi allavega er allt látið kyrrt liggja,

kanski er það svo að það er ekki sama hver gengur svona um með svona sóðaskap,

þetta er ekki eini staðurinn á heiðunum sem svona dýraleyfum er dreift,

fuss og svei segi ég til þeirra sem eiga.

 

 

30.10.2015 17:36

Ljótt er það....

 

 Hrísið í Selárdalnum víða illa farið

 

 

30.10.2015 17:31

Glæsilegt

 

 

30.10.2015 17:27

Blautur dagur

 

 

 

29.10.2015 15:39

Haustlitir

 

 

29.10.2015 15:34

Stórbændurnir í Tungu

 Fylgjast vel með hvað bændur eru að gera og bíða eftir skipunum