Færslur: 2016 Október

26.10.2016 23:12

Haustið er fallegt

 

 

 

 

 

26.10.2016 14:27

SF Tindur 2016 nýr skjöldur

Nýja S.F Tindur stóð fyrir hrútasýningu á veturgömlun hrútum í haust og hrepptu Jón og Erna Broddanesi

fyrstu verðlaun fyrir besta hrútinn á sýningunni,

og átti þá að afhenda nýjan skjöld á sýningunni fyrir besta hrútinn (sjá á mf. mynd)

til varðveislu í eitt ár,

þar sem  skjöldurinn var ekki tilbúinn fyrir sýninguna  var hann afhentur  í réttar hendur í gær.

Óskum Jóni og Ernu innilega til hamingju með verðlaunin.

 

 

17.10.2016 00:14

Langur dagur

Hér má sjá leiðina sem Elli fór á laugadaginn alls 56km. trakkið hans er blátt á litin

og komu  í þessari ferð 9 kindur þurfti að ná fyrst í 5 kindur  síðan til baka til að ná í fjórar

því ekki var hægt að reka þessa hópa saman,

seinni hópurinn  var mjög hægfara þótt þær væru  veturgamlar með lömb

og voru þessir hópar þar sem rauða línan kemur þvert á bláu línuna,

voru þær á  þessari líka flottu beit og landslagi, sjá mynd að neðan.

 

 

  • 1