Færslur: 2013 Janúar

10.01.2013 21:56

Fokvörn


Er þetta lausnin til að verja húsin sín, allavega ekkert augnkonfekt.

10.01.2013 21:47

Nærsveitin

 

 

Það er alveg auðséð að Strandirnar hafa tekið allan snjóinn til sín

 frá Reykhólasveitini í síðasta hvelli.

 

 

08.01.2013 21:53

Fúsi

Troðin var skíðabraut í Selárdalnum, svo Fúsi fékk að liðka sig eftir

sumardvalann, hann hrökk í gang og var fyrrverandi eigandi nokkuð

ánægður að fá að prufa hann aftur eftir eins árs fjarveru.

 

Setti inn nýtt albúm "Snjóbíllinn Fúsi"

þar má líta á hvernig Fúsi leit út fyrir og eftir lagfæringar 2010,

sem voru gerðar af Magnúsi bónda og var hann einn

við þetta verk í ígripum, og tók það einn og hálfan mánuð að

fríkka upp á bílinn á sinn eigin kostnað,

geri aðrir betur á svo stuttum tíma,

hann á svo sannarlega hrós skilið fyrir vel unnið starf.

 

 

 

 

08.01.2013 21:38

Blindhornið á Fellabökunum

 

 

 

Loksins segi ég bara, þetta horn hefur alltaf verið blint svo það er engin eftirsjá

af því, vonandi verður tekið sem mest,

það verður sett í vegstæðið á nýja veginum innst í Steingrímsfirðinum.

 

 

07.01.2013 13:56

Hækkandi sól


Ekki nær sólin lengra niður í hlíðina á þessum tíma en allt er til bóta hún verður komin

inn í gluggana hjá okkur í endaðan mánaðarins.

05.01.2013 17:35

Víðivellir (Hóllinn)

Óðalsbóndinn Sigmar Bent Hauksson frá Víðivöllum var jarðsettur í dag í

Staðarkirkjugarði í góðu janúarveðri, logn og hiti.

03.01.2013 15:43

Góða veðrið

Ef ekki er tími fyrir þessar græjur núna  þá veit ég ekki hvenær.

 

01.01.2013 16:01

Kafsnjór

 

 
 

 

 

01.01.2013 15:46

Bíllinn sem kemst ALLT

Svona fór fyrir þessum bíl  frá O.B.V. í sinni ferð

er rafmagnið fór  í síðasta byl, og það beggja megin.