08.01.2013 21:53

Fúsi

Troðin var skíðabraut í Selárdalnum, svo Fúsi fékk að liðka sig eftir

sumardvalann, hann hrökk í gang og var fyrrverandi eigandi nokkuð

ánægður að fá að prufa hann aftur eftir eins árs fjarveru.

 

Setti inn nýtt albúm "Snjóbíllinn Fúsi"

þar má líta á hvernig Fúsi leit út fyrir og eftir lagfæringar 2010,

sem voru gerðar af Magnúsi bónda og var hann einn

við þetta verk í ígripum, og tók það einn og hálfan mánuð að

fríkka upp á bílinn á sinn eigin kostnað,

geri aðrir betur á svo stuttum tíma,

hann á svo sannarlega hrós skilið fyrir vel unnið starf.