15.01.2010 13:04

Hjóla og göngutúr

Fóum að stað frá Hólum og upp með Heiðagötugili á gömlum vegslóða  sem var gömul póstleið yfir í Reykhólasveit, höfðum með okkur hjólin og teymdum þau töluvert af leiðinni vegna sumstaðar var frekar blautt og drulla, gengum og hjóluðun til skiptis upp að mæðiveikisgirðingunni þar fórum við með henni og enduðum á veginum á Þorsafjarðarheiðinni, nestuðum okkur þar og hjóluðum heimáleið frá þorskafjarðarheiðinni og niður í Staðardalinn og að Hólabústaðnum.

Frá Hólum að girðingunni eru 11 km. en 14.2 km að Þorskafjarðarvegi, 40 km.alls gengið og hjólað.

Veðrið var gott en ringndi mjög mikið er við vorum komin upp á fjallið en stitti svo upp og fengum aðra gusu er við fórum niður Norðdalinn, mjög gaman að fara þessa leið.

 

Fleiri ferðir voru farnar þetta árið,

reiðhjólin geymd  við Bæ og keyrt í Bjarnafjörðinn og farið þaðan á göngustíg sem er gömul póstleið gengið  yfir að Bæ og þaðan hjólað út Bjarnanes og á upphafsstað í Bjarnafirðinum, fóru með okkur þau hjón frá Tröllatungu Birkir og Sigga Drífa með börnin sín á bakinu þau Árnýju Helgu og Stefán Þór.

Sérstaklega skemmtileg ferð.

 

Arnkötludalurinn hlaupinn vegna opnunn hans.

Farið á Bæjarfellið.

Genginn var Seládalinn og inn í Hvannadalinn.

 

Svo var hjólað  frá Selárdalsafleggjara út á Drangsnes þar var stoppað í heitu pottunum mjög notalegt.

Allt mjög ánæjulegar ferðir.

 

Ekki eru til nákvæmur km. fjöldi úr þessum ferðum, verður mælt síðar.