Blogghistorik: 2015 Nästa sida

27.04.2015 12:42

Þá og nú

Efri myndin frá 2013 og neðri frá 2015, alltaf heldur maður að veðrið, færð og snjóalög

séu alltaf verst í núinu, (erum  bara gleymin)

 

23.04.2015 21:30

Flækingsrófurnar

 Þessi á efri myndinni átti heiðurinn að því að koma þessum á neðri myndinn í húsaskjól.

 

21.04.2015 15:46

Enn beðið

 Framkvæmdir hefjast er snjóa leysir

 

12.04.2015 21:22

Á háheiðinni

 Fastur bíll og skíðakappar að notfæra sér vindinn á Steingrímsfjarðarheiðinni í dag.

 

 

 

12.04.2015 21:16

Bílalest

Bílum safnað saman og hleypt  svo í hollum yfir
 
 

12.04.2015 21:15

Sólmyrkvamynd

Þessi líka fína mynd leyndist í síma bóndans

10.04.2015 18:33

Fjárvís/fjárræktafundir


 

Sælir ágætu bændur

 

Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum Fjárvís-notendum að nú er komið nýtt forrit í gagnið. Það gekk lengi undir vinnuheitinu lamb.is en síðan var ákveðið að það hlyti nafnið Fjárvís í höfuðið á forvera sínum.

 

Til stendur að halda kynningarfundi fyrir hina nýju Fjárvísi á næstunni.

 

Blönduós 13. apríl kl. 14  (Salur Búnaðarsambandsins á Húnabraut 13)

Gauksmýri 13. apríl kl. 20

Strandir 22. apríl kl. 13 (staðsetning ekki ráðin enn)

 

Á Ströndum verður kynningin á sameiginlegum fjárræktarfélagafundi fjárræktarfélaganna Norðra, Blævar, Kirkjubólshrepps, Kaldrananeshrepps og Hólmavíkurhrepps. Verður þar jafnframt farið yfir skýrslur síðasta árs og fleira rætt.

 

Stefnt er að því að hafa kynningu á Fjárvísi á fundi fjárræktarfélagsins Vonar, í Árneshreppi í júní.

 

Hvet ykkur sem flest til að mæta á þessa fundi og eins að skoða þetta nýja forrit.

 

Bestu kveðjur

Anna Magga

 

 

 

10.04.2015 13:20

Spar-mót

 
 

10.04.2015 13:15

Páskafjör

 

 

 

 

07.04.2015 23:05

Gaman saman

Þessir frændur ná vel saman

07.04.2015 22:56

Á skíði skelli ég mér

Þurfa nú ekki vera háir í loftinu til að fara á skíði og komast yfir marklínuna.
  • 1