Blogghistorik: 2013 N/A Blog|Month_3

30.03.2013 16:17

Fjöllin heilla



Fleiri myndir í albúmi "Snjósleðarúntar2013"

29.03.2013 14:36

Fjöll


Ætlunin að fara á þessar slóðir daginn eftir en veðrið hamlaði för, snjóaði of mikið til þess

27.03.2013 10:12

Ótitlað

http://www.livefromiceland.is/webcams/hekla/


Hægt að fylgjast með Heklu gömlu á þessum link.

25.03.2013 13:26

Eitthvað fyrir forvitna

Afkvæmarannsóknir 2012

Sigurður Eyþórsson skrifaði | .

Á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins má finna niðurstöðutölur afkvæmarannsókna 2012.  

Á árinu voru unnar afkvæmarannsóknir á 162 búum alls staðar af landinu og komu til dóms rúmlega 1.700 afkvæmahópar. Tölulegar niðurstöður og umfjöllun um hverja rannsókn ásamt yfirliti um afkvæmahópa sem sköruðu framúr er hægt að nálgast á rml.is

24.03.2013 14:26

Akureyrar snjór



Þarna er einn af heimalingunum mínum að ryðja göturnar á Akureyri, sýnist að hann kunni bara þokkalega til verka.

23.03.2013 22:22

Ótitlað

Long term forecast
Sunday24 March Monday25 March Tuesday26 March Wednesday27 March Thursday28 March Friday29 March Saturday30 March Sunday31 March Monday01 April
Fair Fair Partly cloudy Partly cloudy Partly cloudy Partly cloudy Fair Cloudy Rain
-1° -2° -1° -2° -2° -2° -2°
0 mm precipitation per 24 hours 0 mm precipitation per 24 hours 0.2 mm precipitation per 24 hours 0 mm precipitation per 24 hours 0.9 mm precipitation per 24 hours 0 mm precipitation per 24 hours 0 mm precipitation per 24 hours 0.3 mm precipitation per 24 hours 9 mm precipitation per 24 hours
Light air, 2 m/s from east-northeast Light air, 1 m/s from north Gentle breeze, 4 m/s from east-northeast Gentle breeze, 5 m/s from northeast Moderate breeze, 8 m/s from northeast Gentle breeze, 4 m/s from northeast Light breeze, 3 m/s from east-northeast Light air, 2 m/s from south-southeast Moderate breeze, 7 m/s from south-southwest

23.03.2013 21:44

Kinda greyin



Enginn öfundsverður af þessari erfiðisvinnu





23.03.2013 14:46

Hólmaklif



Hólmaklif á Selströnd


23.03.2013 14:41

Fagurgalavík



Fagurgalavík á Selströnd


22.03.2013 11:30

Uppbót

SV greiðir uppbót

| .

Sláturfélag Vopnfirðinga hefur kynnt að það greiði innleggjendum sínum 2,8% uppbót á innlegg síðasta árs eins og flestir aðrir sláturleyfishafar.

Aðeins SAH og Fjallalamb hafa ekki tilkynnt um neinar aukagreiðslur.

21.03.2013 22:25

Skjaldfannardalur



Ekki hægt að segja annað en að allt sé hvítt í Skjalfannardal.


Rúðan aðeins skítug af tjöru






þessi mynd er tekin fyrir neðan Hamar.

20.03.2013 15:48

Misjafnt skyggnið



Efri myndin tekin 10.30
og neðri myndin tekin kl.15.00 í dag, enn hefur bætt á snjóinn


20.03.2013 12:40

Kjöt


Meðalverð hækkar um 10 kr. vegna aukagreiðslna

Sigurður Eyþórsson skrifaði | .

Sláturfélag Suðurlands, Kaupfélag Skagfirðinga, Norðlenska og sláturhús KVH hafa öll tilkynnt um uppbótargreiðslur vegna innleggs síðasta árs eins og fram hefur komið.  Ekki hefur heyrst um hvort SAH, Fjallalamb eða Sláturfélag Vopnfirðinga muni greiða sambærilegar greiðslur.

Með ofangreindum aukagreiðslum er vegið meðalverð á lambakjöti til bænda 2012 orðið tæpar 539 kr/kg. Það er 10 krónum hærra en áður en þær komu til.  Heildarhækkun frá árinu 2011 er þá um 36 kr/kg eða rúm 7%.  Landssamtök sauðfjárbænda fóru fram á að verðið yrði 550 kr/kg þegar viðmiðunarverð var gefið út í fyrra.

Verð fyrir annað kindakjöt er með sama hætti orðið 252 kr/kg sem er hækkun um 3 kr/kg á milli ára eða rúmlega 1%.

19.03.2013 21:23

Girðingar

Hörð mótmæli í Húnaþingi

Sigurður Eyþórsson skrifaði | .

Sveitarstjórn Húnaþings vestra mótmælir harðlega þeirri ákvörðun að engum fjármunum verði varið til viðhalds sauðfjárveikivarnargirðinga á landinu á þessu ári. Það er álit sveitarstjórnar að með þessari ráðstöfun sé áratuga starfi tengt vörnum við útbreiðslu búfjársjúkdóma stefnt í mikla tvísýnu sem kunni að hafa ófyrirsjáanlegar og kostnaðarsamar afleiðingar í för með sér.

Þetta kemur kemur fram í fundargerð sveitarstjórnarfundar Húnaþings vestra frá 14. mars síðastliðinn. Þar segir einnig að verði ákvörðun þessari ekki breytt og fjármunir til viðhalds girðinganna tryggðir nú þegar af hlutaðeigandi stjórnvöldum sé lífsafkomu bænda ógnað vegna hættu á útbreiðslu alvarlegra búfjársjúkdóma og sé ábyrgð þeirra sem í hlut eigi því mikil.

Sjá hér.  Sjá einnig ályktun Búnaðarþings 2013 um málið.


19.03.2013 21:09

Jökulfari



Vegna tæknilegra örðuleika  get ég ekki snúið þessari mynd rétt, en þarna er Elli staddur á Drangjökli nú fyrir stuttu í frábæru veðri
með félögum sínum.

19.03.2013 13:54

13 mars



Alexander ömmuknúsari var 6 ára þann 13 mars,sæti minn.

19.03.2013 13:27

Afmælisbarn dagsins



Pabbi minn er 84 ára í dag, mínir foreldrar dvelja á Dvalarheimilinu Barmahlíð.

19.03.2013 12:45

Súkkulaði er gott



Takið endilega þátt í skoðunnarkönnunni hér til hliðar, eingöngu gerð að gamni.(ekki vera feimin)

17.03.2013 16:49

Mummi



Gaman hjá snjóbílnum Mumma