Færslur: 2015 Ágúst
30.08.2015 18:43
Tilfinningarlausir ökumenn á ferð
Ekki er þetta þau fyrstu og ábyggilega ekki þau síðustu sem fara á þennan hátt, samviskulausir ökumenn sem skilja svona lagað eftir án þess að tilkynna drápin. |
27.08.2015 16:21
Allir standi saman.........
Það eru auðsjánlegt að ekki eru allir undir sama hatti innan stéttarinnar,
skoðum orðalagið það sem er undirstrikað í textanum.
Tekið beint úr BBL.
Það væri nú ekki verra að vita hver skrifar greinina.
Litprúðar lífgimbrar komu
frá Drífu á Ósi og Barböru og
Viðari í Miðhúsum, en vel byggð-
ir kynbótahrútar frá Sigríði og
Ragnari á Heydalsá, Jóni og Ernu
á Broddanesi, Gunnari og Pálínu í
Bæ í Árneshreppi og Indriða bónda
á Skjaldfönn við Djúp.
En aftur á móti er þetta svolítið skondið.
Þess má geta
að hlutur Strandamanna í flokki
vanra dómara var svipur hjá sjón
miðað við það sem áður hefur
verið því að þeir áttu þar ekki
mann á verðlaunapalli og um slíkt
eru engin dæmi frá fyrri mótum.
Kvittur kom upp um að ófarir-
nar mætti að einhverju rekja til
Jóns þar sem hann hefur mörg
undangengin mót undanteknin-
garlaust haldið í besta hrútinn.
Það hafi því verið orðin staðreynd
fyrir Stranda
mennina eins og
að sólin kemur upp að morgni
að svo væri. Það er líklegasta
skýring þess hvern óratíma það
tók marga
þessa reyndu dómara
þeirra að koma Svala í efsta sætið
í stigum.
12.08.2015 17:19
Stóri og litli Jóhann
vantar enn nokkra cm. til að ná nafna sínum
|
04.08.2015 18:47
Ljótt er það
Svona kom ein kindin inn í júní, var eins og hún væri með þykkan skráp |
04.08.2015 18:42
Lagfæringar
Svona fór grindverkið í vetur eftir mikið rok og hjarninu skóf, reynt að laga útlitið. |
- 1
- 2