26.02.2015 13:57
Fyrir alla
- Mjólk, mjólkurvörur
- Ostar
- Ís
- Kornmatur, brauð og kökur
- Grænmeti og kartöflur
- Ávextir, ber, hnetur og fræ
- Kjöt og kjötvörur. Fuglakjöt
- Fiskur, fiskafurðir og skeldýr
- Egg og eggjavörur
- Feitmeti: smjör, smjörlíki, olíur o.fl
- Sykur, hunang og sælgæti
- Drykkir, nema mjólkurdrykkir
- Matarsalt, edik, ger, krydd og kraftur
- Snakk: poppkorn, flögur o.fl.
- Sósur, súpur og áleggssalöt
- Tilbúnir réttir
- Fæðubótarefni, næringardrykkir, sérfæði
Listi yfir allar fæðurtegundir.
24.02.2015 22:54
kl. 23:00
Núna er útlit fyrir að þetta verði svona á miðnætti á morgun |
23.02.2015 17:34
Sjórinn ansi kaldur
|
23.02.2015 17:32
Út að leika
Sko til, það ertu til ennþá börn sem kunna að leika sér úti. |
20.02.2015 13:24
Bara alltaf á toppnum
Flest lömb skoðuð í Strandasýslu 2014
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Tafla 1. Meðaltöl og fjöldi stigaðra hrútlamba frá árinu 2010.
Ef horft er á hlutfall skoðaðra lamba af fæddum lömbum í hverri sýslu, þá er hlutfallið hæst í Strandasýslu eða 23,3% og þar er einnig mesti fjöldi lamba skoðaður (7.777 lömb). Hlutfallið er næsthæst í Barðastrandarsýslum, 16,9%. Í þremur sýslum nær þetta hlutfall hins vegar ekki 10% en það er í N-Múlasýslu (5,7%), V-Skaftafellssýslu (6,8%) og S-Múlasýslu (8,1%). Nokkuð sterkt samhengi virðist vera milli holdfyllingarflokkunar lamba og þátttöku í skoðunum. Haustið 2013 var gerðareinkunn sláturlamba að jafnaði hæst í Strandasýslu (9,05) en lægst í N-Múlasýslu (7,98) og V-Skaftafellssýslu (8,27).
Í heildina voru skráð fædd 671.634 lömb síðastliðið vor í skýrsluhaldskerfið Fjárvís.is og af þeim voru skoðuð 12,5%. Í Skagafirði eru flest lömb fædd eða 60.276 og næstflest í N-Múlasýslu, 58.054.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Yfirlit yfir fjölda fæddra
skoðaðra lamba og hlutfall skoðaðra lamba
alls af fjölda fæddra lamba árið 2014.17.02.2015 12:37
Og hvað svo
Allt orðið freðið aftur og áin bólgnar upp hækkaði um ca. 30 cm. í nótt, í morgun var útlitið svona en hvað gerist svo er fer að hlána í kvöld og nótt, hlakka ekki til. |
13.02.2015 17:24
Þessi fjandi
Riða á Norðvesturlandi
Riðuveiki greindist nýverið á bæ á Norðvesturlandi. Þetta er fyrsta tilfelli hefðbundinnar riðu sem greinist á landinu frá árinu 2010. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.
Riðan greindist í sýnum úr tveimur kindum frá bænum Neðra-Vatnshorni í Húnaþingi-vestra, þar sem fjöldi fjár er hátt í fimm hundruð. Sýnin voru tekin samkvæmt skimunaráætlun Matvælastofnunar við slátrun síðastliðið haust. Ekki hafði orðið vart neinna sjúkdómseinkenna. Sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Mikill fjöldi sýna er tekinn við haustslátrun og er því enn unnið að rannsókn á þeim.
Um er að ræða hefðbundna gerð riðusmitefnisins, sem ekki hefur greinst hér á landi síðan árið 2010 og þá í Árneshólfi. Bærinn sem nú um ræðir er í Vatnsneshólfi. Í því varnarhólfi greindist riðuveiki síðast árið 2000. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011, 2012 og 2013. Riðuveikin er því á undanhaldi en þetta tilfelli sýnir að ekki má sofna á verðinum. Á undanförnum árum hafa sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjú til fjögurþúsund kindum á ári. Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna riðuna.
Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttektar á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð.
03.02.2015 12:54
Sólarpönnsur
|
02.02.2015 11:33
Rjúpur
|