Sauðfjárveikivarnargirðingin á Kili liggur milli Langjökuls og Hofsjökuls, aðskilur Norður- og Suðurland og tryggir að fé gangi ekki á milli Húnavatnssýslna og Biskupstungna. Kristján Jónsson, bóndi í Stóradal, hefur séð um að halda girðingunni við og fengið greitt frá Matvælastofnun. Á föstudag fékk hann þau svör að ekki ætti að gera við girðinguna í sumar. Sigríður Jónsdóttir, sauðfjárbóndi í Arnarholti í Biskupstungum, segir bændur ósátta við það ef Matvælastofnun ætli ekki að gera við girðinguna á Kili.
Óttast riðusmit milli Norður- og Suðurlands
„Það komu nú bara upp þrjú riðutilfelli á Norðurlandi í fyrravetur. Það er búið að skera niður vegna riðu hér í Tungunum tvisvar með kostnaðarsömum og sársaukafullum aðgerðum og ef þessi girðing er ekki í lagi er algjörlega fyrir séð að það myndi margt fé streyma þarna á milli sem má bara ekki gerast,“ segir Sigríður. Hún bendir að vegna þess hve seint voraði séu Húnvetningar að fara að sleppa á næstu dögum eða innan hálfs mánaðar. „En tíminn er fljótur að líða og það verður að leysa úr þessu máli. Það verður að vera hægt að gera við girðinguna um leið og hún kemur undan snjó.“
MAST þurfti að forgangsraða
Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun þurfti vegna fjárskorts að forgangsraða þeim girðingum sem verður haldið við í sumar og urðu nokkrar, sem hefði þurft að laga, útundan. Bjarki R. Kristjánsson, forstöðumaður rekstrar og mannauðssviðs MAST, segir það mjög bagalegt. „Við höfum verið að berjast fyrir þessu fjármagni undanfarin ár. Höfum fengið viðbótarfjárveitingu og framlag úr sjóðum en núna virðist allt vera upp urið.“
Fleiri girðingar munu „leka“ í sumar
Hann segir að auk Kjalarlínu hafi þurft að fresta viðhaldi á hluta af Tvídægralínu úr Arnarvatni niður í Langjökul og einnig hluta af Hvammsfjarðarlínu sem liggur í Hrútafjörð. „ Við höfðum spurnir af því að við fengjum viðbótarframlag á næsta ári en það er ekkert fast í hendi,“ segir Bjarki.
Rúnar Snær Reynisson fréttastofa RÚV