15.04.2019 10:57
21-31 mars
21 byrjaði með snjókomu og dimmum éljum, bóndinn fór í síðasta Flandrasprett í vetrasins
með Tungu fjölskyldunniog dóttirin kom frá Sauðárkrók mætti líka eins og hún hefur gert í allan vetur
vel gert hjá þeim öllum að mæta í þessi hlaup.
Snjómokstur á Bassastaðahálsi vegna jarðarfarar í Árneshreppi.
Ræktum líkaman þrisvar í viku alveg nauðsynlegt.
Sveitstjórnin er farin á stað með að vinna í að byggja nýja fjárrétt Hofstaða megin í dalnum
og höldum í þá von að byrjað verði í sumar þó að það verði ekki annað en að undirbúa jarðveginn
og bygging á næsta ári gamla réttin er orðin barn síns tíma og orðin viðhaldsfrek,
hún ekki að nýtast hérna megin í dalnum eins og áður.
Elsti sonurinn kom með
tvo yngstu syninina yfir rúma helgi vertarfrí í skólanum og lengra helgarfrí.
Skruppum á Krókinn til að yfirfara bílinn og í heimsókn.
Yngsti sonurinn átti afmæli 35 ára.
þó að 21 byrjaði svona endaði þessi mánuður með þvíklíkri blíðu
logn og hiti alla daga vor í lofti og bjart framundan og tilhlökkun að takast á við útiverkin.