01.02.2019 21:07
21-31 jan
Veðurspáin hefur gengið eftir með hægviðri og frosti, af og til með töluverðu frostl,
29 jan. fór að hvessa og snjóa svo þá er alltaf skafrenningur,
höfum komist á gönguskíðin bæði troðin braut hérna heima og í Selárdalnum
æðislegt að komast út dag eftir dag án þess að þurfa að troða braut í hvert skipti bara hoppa á stað,
fórum á þorrablót á Reykhólum í miklu stuði þar og hittum fyrrum sveitunga, systkyn og frændfólk.
Komumst að því að hrúturinn sem við lóguðum fyrr í mánuðinum hefur klikkað, flestar ærnar
hafa gengið upp svo að síðasta ærin gekk þann 23 jan. svo hún mun bera um miðjan júní.
Hrútarnir teknir úr ánum þann 31 jan. mikil slagsmál og læti þegar þeir komu saman.
Yfir og út.