09.06.2016 10:09
Sauðburðarlok
Sauðburði lokið þetta árið kl.8:59 þrjár kindur enn inni nokkrir dagar þar til að þær fá að njóta blíðunnar, erum með tvo heimalinga því móðirinn dó frá þeim rétt fyrir lok sauðburðar, höfum ekki verið með heimalinga í mörg ár. Þessi sauðburður var einstaklega góður hlýtt í veðri og gróður fór snemma á stað svo féð fór út á vel grænt. Alltaf gaman að stússast í fé þegar veðrið leikur við bæði menn og dýr. |
Skrifað af Labbi