07.02.2013 15:47
Spá fyrir febrúarmánuðinn
Tíð verður rysjótt í febrúar. Það telja spámenn í Veðurklúbbnum á Dalbæ í Dalvíkurbyggð.
Klúbbfélagar eru nokkuð vissir að tveir snjóhvellir verði í þessum mánuð og verði sá síðari sýnu
harðari en hinn fyrri.
Spá byggja klúbbfélagar m.a. á draumi,en eina nóttina dreymdi einn félaganna að hann væri staddur
í fjárhúsi og horfði yfir króna þar sem hann sá bíldóttar ær og tvö lömb í sama lit.
En einnig því að tungl mun kvikna í austri 10 febrúar kl.7.20 og er það sunnudagstungl.
Draumurinn sem og sunnudagstunglið telja klúbbfélagar helsta fyrirboða rysjóttar tíðar
í febrúarmánuði.Að öðru leiti eru félagsmenn nokkuð bjartsýnir á það sem eftir lifir vetrar.
Engin spá var gefin út fyrir janúarmánuð og segja félagar að óðviðráðanlegir tækniörðuleikar
hafi orðið þess valdandi, "tæknin er alltaf að stríða okkur" segja þeir.